2. Stjórnarfundur 2014

By 14. apríl, 2014júní 11th, 2020Fundargerðir, Stjórn

Fundurinn var haldinn að Laugavegi 3 í Reykjavík og hann sátu Hilmar Magnússon formaður (HM), Kamilla Einarsdóttir ritari (KE), Örn Danival Kristjánsson meðstjórnandi (ÖDK), Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir meðstjórnandi (AÞÓ). Auk stjórnar sat fundinn Valgerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi trúnaðarráðs (VJ). Boðuð forföll: Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson gjaldkeri (VIV), Svandís Anna Sigurðardóttir varaformaður (SAS) Gunnar Helgi Guðjónsson meðstjórnandi (GHG).

Ár 2014, mánudaginn 14. apríl kl. 17.30 var haldinn fundur stjórnar Samtakanna ‘78.
Kamilla Einarsdóttir ritaði

1. Staða mála frá síðasta fundi

Aðgangur að gögnum

Aðgangur er kominn. Lokið.

Stattu með!

ÁGJ fjarverandi og umræðu frestað. Aðeins rætt í facebookhóp í síðustu viku. Í vinnslu – ábyrgðarmaður ÁGJ og SAS

Fræðslubæklingur

SAS fjarverandi og umræðu frestað. Í vinnslu – ábyrgðarmaður SAS

Lögreglubæklingur

SAS fjarverandi og umræðu frestað. Í vinnslu – ábyrgðarmaður SAS

Stjórnsýslukæra

HM hefur ekki náð að taka stöðuna. Í vinnslu – ábyrgðarmaður HM

Bókasafn

ÁGJ og SAS tala við Þorvald. SAS ræðir við kynjafræði. Dagsetning fyrir formlegan flutning óákveðin.Þarf að muna að tala við Borgarbókasafn. Staða. Umræðu frestað. Er í vinnslu. ábyrgðarmaður SAS, ÁGJ og HM

Tillaga frá aðalfundi varðandi félagsstarf

GHG fjarverandi og umræðu frestað. Í vinnslu – ábyrgðarmaður GHG

Stjórn og trúnaðarráð – fyrsti fundur og partí

Partí þann 4. apríl heppnaðist vel. Ákveðið að halda sameiginlegan fund stjórnar og trúnaðarráðs 26. apríl nk. í S78 frá 10.30 til 16.00. 14 af 21 í Facebookhópi stjórnar og trúnaðarráðs hafa þegar tilkynnt komu sína. Ákveðið að helga fundinn húsnæðismálum, forréttindafræðslu, stefnu og starfsemi og hafa seinni hluta hans opinn öllum félagsmönnum. Þarf að auglýsa sem fyrst í fréttabréfi o.fl.

Drög að dagská:

10.10 Stjórn, trúnaðarráð og hagsmunafélög – tilgangur og samspil
11.00 Hlé
11.10 Starfið næsta árið – verkefni ársins, starfshópar og skipulagsdagatal
12.00 Matur
13.00 Forréttindafræðsla (opið öllum frá og með þessum lið)
13.50 Hlé
14.00 Hvert eiga S78 að stefna? – samtakamátturinn, stefnuplagg, áherslur
14.50 Hlé
15.00 Samtökin á Suðurgötunni

Rætt og unnið með hugmyndir um stefnu, starfsemi og húsnæði S78. Einnig hægt að skrá sig í starfshópa.

Í vinnslu og rætt áfram á facebook og HM ætlar að gera viðburð.- ábyrgðarmaður HM, SAS og ÁGJ

Stefnumótun S78

HM leggur til að stefnumótun verði tekin til umræðu opnum fundi með félagsmönnum í framhaldi af sameiginlegum fundi stjórnar og trúnaðarráðs þann 26. apríl nk. Gögn frá samtakamætti og stefnumótunarplagg 2009-2012. Í vinnslu – ábyrgðarmaður HM.

Starf starfshópa og nefnda

Starfshópar verði kynntir á opnum fundi 26. apríl – fólk geti skráð sig í starfshópa (þá sem eru opnir). Í vinnslu – ábyrgðarmaður HM

Úgandaverkefni

Verkefnisstjórn ætlaði að hittast í síðustu viku – en gekk ekki. Ekki hefur frést af peningamillifærslum. Tekið fyrir á næsta fundi. Í vinnslu – ábyrgðarmenn AÞÓ og HM
1.12 Sýning God Loves Uganda
Viðburðurinn tókst vel og vel mætt og talað um að reyna að starfa að því saman að fá myndina til Íslands og gera úr því viðburð. AÞÓ og HM verða í sambandi við Sigurvin prest varðandi þetta. Í vinnslu – ábyrgðarmenn AÞÓ og HM

Alþjóðamál – Færeyjar og Malta – fulltrúar

Formaður fer til Færeyja 23. til 24. apríl í boði Norðulandahússins í Tórshavn. Opnun sýningarinnar Gay Greenland. Fulltrúar frá Færeyjum Grænlandi og Íslandi. Rætt um að koma á betra samstarfi. Taka snúning á þessu í alþjóðanefnd og móta innlegg í fundinn – ábyrgð AÞÓ og HM.

Malta: Komið boð um að senda tvo fulltrúa – þarf að svara f. 18. apríl. Aðeins annar fulltrúi er kostaður. Spurning um að senda tvo fulltrúa og annan á eigin kostnað. Ákveðið að ræða málið í Facebookgrúppu (HM ætlar að setja inn dagskrá fundarins) og ákveða. Ábyrgð AÞÓ og HM.

Kominn tími á tékk?

Skoða hvort HIV verkefni verði reglulegt og starfshóp um lýðheilsu. VIV og SAS fjarverandi og umræðu frestað. Í vinnslu – ábyrgð VIV og SAS

Reykjavík Pride – Innlegg í dagskrárrit

Staðan er þannig að frestur fékkst til að skila inn annál samtakanna. Umræða um nálgun. AÞÓ ætlar að opna google skjal og byrja. Í vinnslu – ábyrgðarmaður AÞÓ

Húsnæðismál

Búið að skrifa undir kaup á Suðurgötu 3. Afhending 1. júlí. Verðum í bandi við VG um að fá mögulega afhent fyrr. En við verðum að vera raunsæ með tímaplanið og þetta má ekki gera í of miklum flýti. Frekar vel en fljótt. HM, VIV, SAS og ÁGJ hittu Helga Steinar Helgason arkitekt og ætla að spjalla betur við hann um möguleika húsnæðisins. -ábyrgðarmaður VIV, SAS og HM.

Málefni intersexfólks

Fræðslukvöld og boð fulltrúa intersexfólks á stjórnar- og trúnaðarráðsfund og að hitta ráðgjafa S78. SAS fjarverandi og umræðu frestað. Verður rætt á Facebook þannig að hægt verði að taka ákvörðun um fræðslufund sem fyrst. Í vinnslu – ábyrgð SAS

Heimasíða og Facebook.

SAS og HM hittu Sigga í trúnaðarráði á dögunum með ÁGJ og fóru yfir málin. Rætt um að Siggi taki saman það sem hefur verið gert og hvar við stöndum í dag og hvaða hugmyndir hafa verið uppi. Þarfagreining og starfshópur á dagskrá áður en lengra er haldið.
Heimasíðutæknihópur- HM ætlar að tala við Sigga.
Ákveðið að stofna hóp um ritstjórn facebooksíðunnar. Þarf að skoða hver svarar bréfum, hver setur inn innlegg, hvað á að gera við Hýraugað. KE kemur með hugmyndir á facebook og kynnir betur á næsta fundi.-
Í vinnslu – ábyrgð KE, SAS og HM

Styrkjadagatal

VIV var fjarverandi og umræðu frestað

Fræðsla um fötlun til ráðgjafa. Ekki hefur farið fram umræða í trúnaðarráði.

Verður betur rætt á næsta fundi.

Áhugi alþjóðasamstarfi

Frestað til næsta fundar.

Forréttindafræðsla

HM lagði til að fyrsta skref verði að bjóða upp á fræðslu laugardaginn 26. apríl og fá Auði Magndísi til að halda hana. Samþykkt. -ábyrgðarmaður SAS

2. Mál sem komu upp eftir síðasta fund

Snorri í Betel-Akureyri

Þetta var tekið fyrir í facebook. HM sendi yfirlýsingu á RÚV eftir að RÚV hafði samband. Hann og fór í líka í viðtal þar og því var gert góð skil. -lokið.

Japan

Inn á facebook kom fram að ósk hefði borist um að við sendum Sendiráði Íslands í Japan nokkra punkta um starfið til að nota í kynningu á Tokyo Pride. Umræðan áfram inn á facebook. Í vinnslu. Ábyrgðarmaður: ÁGJ

3. Ný mál

Ákveðið að setja pride mál sumarsins á dagskrá næsta fundar.

Fundi slitið kl. 18:46
Næsti fundur verður mánudaginn 28. apríl kl. 17:30

296 Comments

Skrifaðu athugasemd