Í sumar verður boðið upp á sögugöngu um staði sem tengjast lífi lesbía og homma í miðborg Reykjavíkur. Fjallað verður um menningu og mannréttindabaráttu samkynhneigðra allt frá síðari hluta 19. aldar. Næturlífi, pólitík, bókmenntum og tónlist sem tengjast samkynhneigðum í borginni verða gerð skil. Einnig verða rifjaðir upp sögufrægir atburðir í lífi einstakra samkynhneigðra Reykvíkinga.
Menning lesbía og homma í Reykjavík hefur verið hulin flestum hingað til. Markmið gönguferðanna er að varpa hulunni af þessum merkilega menningarkima borgarinnar. Fjölda markverðra staða er að finna í miðborginni þar sem líf samkynhneigðra kemur við sögu. Reykjavík er hýrari en margur heldur!
Fyrirmyndin af göngunni er sótt til stórborga erlendis þar sem víða er boðið upp á slíka leiðsögn. Gönguferðirnar eru einkum ætlaðar erlendum ferðamönnum sem vilja kynnast nýrri hlið á Reykjavík – Reykjavík fólksins og fjölbreytileikans. Leiðsögn getur bæði farið fram á ensku og íslensku og ferðin tekur um klukkustund. Fyrsta gangan var farin með hóp stúdenta úr FSS og systrafélögum þess sem staddir voru hér á landi á ráðstefnu um miðjan apríl.
Laugardaginn 26. maí verður sérstök söguganga á vegum Samtakanna ‘78. Safnast verður saman á Café Cozy í Austurstræti og lagt af stað kl. 17.00. Skipuleggjendur og leiðsögumenn eru Felix Bergsson, leikari og Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur. Hægt er að fá frekari upplýsingar og panta sögugöngu hjá Baldri í síma 8960010.
πώς να κατεβάσετε το βίντεο ig
ilmainen instagram-ohjelma, ilmainen lataus
macbook free ig image download
david laid
download de imagem com qualidade insta
michelle bieri
download instagram video
instagram hd featured download
mac free instagram profile picture download
download instagram video
ipad insta igtv download