HELGI HRAFN LEIKUR LJÚFA TÓNA FYRIR GESTI

By 31. október, 2007Fréttir

Helgi Hrafn Jónsson gítar- og básúnuleikari með meiru heldur tónleika í Regnbogasal Samtakanna ´78 fimmtudagskvöldið 1. Nóvember KL. 21. Helgi hefur vakið athygli með hljómsveitum á borð við Beefelk og Bosanova auk þess að hafa leikið á básúnu með Sigur rós.

Helgi Hrafn Jónsson gítar- og básúnuleikari með meiru heldur tónleika í Regnbogasal Samtakanna ´78 fimmtudagskvöldið 1. nóvember kl. 21. Helgi hefur vakið athygli með hljómsveitum á borð við Beefelk og Bosanova auk þess að hafa leikið á básúnu með Sigur rós .

Helgi Hrafn er fæddur í Reykjavík 1979. Hann hóf snemma að leika á básúnu og vakti nokkra athygli með unglingahljómsveit sinni Bossanova. Eftir útskrift úr einleikaradeild Tónlistarskóla Reykjavíkur 1999 hélt Helgi til Austurríkis og útskrifaðist þaðan 2004 með meistaragráðu frá Universität für Musik und Darstellende Kunst. Helgi hefur getið sér gott orð í tónlistarlífi Austurríkis og mun til dæmis halda tónleika á næsta ári í hinu virta Konzerthaus í Vínarborg. Hljómsveit hans Beefólk hefur ferðast vítt og breitt um Evrópu og Asíu. Þá hefur Helgi komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Röddum Evrópu. Hann hefur einnig leikð með Sigur rós, bæði í hljóðveri og víðsvegar um heiminn. Fyrsta sólóplata Helga kom út fyrir tveimur árum og hlaut góðar viðtökur og lofsamlega dóma.

Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og er aðgangur ókeypis.

-Samtökin ´78

 

Skrifaðu athugasemd