Að loknum fundi…

By 8. apríl, 2011Fréttir

Líflegar og eldheitar umræður spunnust á fundi um staðgöngumæðrun í Regnbogasal Samtakanna ´78 í gærkvöldi. Þær Ragnheiður Elín Árnadóttir alþingiskona og Katrín Anna Guðmundsdóttir jafnréttishönnuður voru frummælendur á fundinum. Þökkum við þeim kærlega fyrir frábært erindi. Fundargestir voru rúmlega þrjátíu og tóku flest allir þátt í umræðunum á eftir.

Samtökunum ´78 hafa borist eftirfarandi linkar og upplýsingar fyrir þá sem vilja kynna sér málið betur og viljum við hvetja alla áhugasama sem luma á upplýsingum, linkum eða öðrum upplýsingum að koma þeim til okkar, svo umræðan geti haldið áfram, blómstrað og dafnað. 

Staðganga stuðningsfélag stendur fyrir opnu málþingi um staðgöngumæðrun næstkomandi mánudag kl. 17:00 – 20:00 í Hringsal LSH við Hringbraut.  Markmið málþingsins er að stuðla að upplýstri og faglegri umræðu um staðgöngumæðrun á Íslandi.  Á málþinginu gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í umræðunni með þeim íslensku aðilum sem öðrum fremur geta talist til sérfræðinga á þessu sviði en þeir eru ekki margir eins og gefur að skilja.

Á frummælendaskrá eru m.a.

  • Guðmundur Araon sérfræðingur hjá ART Medica
  • Helga Sól Ólafsdóttir félagsfræðingur og doktorsnemi – Helga Sól hefur reynslu af staðgöngumæðrun í Finnlandi
  • Prófessor Reynir Tómas Geirsson yfirlæknir á LSH
  • Ragnheiður Elín Árnadóttir þingmaður
  • Fulltrúi frá Staðgöngu stuðningsfélagi
Í pallborðsumræður bætast svo eftirfarandi aðilar við:
  • Gyða Eyjólfsdóttir sálfræðingur sem hefur sérhæft sig í ráðgjöf vegna ófrjósemi og kynntist staðgöngumæðrun í USA
  • Katrín Björk Baldvinsdóttir formaður Tilveru
Dagsetning: Mánudaginn 11. apríl n.k.
Staðsetning: Hringsal LSH við Hringbraut – á milli kvennadeildar og barnaspítalans
Tímasetning: 17:00 – 20:00
Léttar veitingar verða í hléi í boði Staðgöngu.

www.stadganga.com

Skrifaðu athugasemd