Mikill vilji er meðal beggja félaga að leggja sameiginlega hönd á plóg til að vinna að bættu upplýsingaflæði um málaflokkinn, sem og auknum þunga í leit að löndum sem tilbúin eru að ættleiða til samkynja para og einhleypra einstaklinga.
Í undirbúningi hjá S78 er fræðslufundaherferð sem hlotið hefur vinnuheitið “Hinsegin heilbrigði og hamingja”. Hugmyndin er að einn af þessum fundum verði tileinkaður ættleiðingum og tók Íslensk Ættleiðing mjög vel í að koma á þann fund og kynna málaflokkinn fyrir félagsmönnum, fræða og vonandi leggja línurnar að frekara samstarfi. Stefnt er að því að þessi fundur verði í lok mánaðarins en nánari dagsetning verður staðfest á næstu dögum.
Félagsmenn sem hafa tillögur að fræðslufundum, erindum og frummælendum eru hvattir til að senda tillögur sínar á skrifstofa@samtokin78.is
Vert er að benda á opinn morgunverðarfund Innanríkisráðuneytisins um ættleiðingar: http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/27038
Skýrsluna í heild má nálgast á vef innanríkisráðuneytisins: http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/24333
Við hvetjum alla sem telja sig málefnið varða til að mæta á þennan morgunverðarfund og kynna sér málaflokkinn vel og að sjálfsögðu koma svo á fræðslufundinn í samtökunum og leggja sitt af mörkum til umræðunnar þar.
The free ends of these catheters were brought subcutaneously to the back of the neck buy priligy in usa