Aðalfundur Samtakanna '78 fór fram síðastliðinn laugardag. Þar mættu hátt í 60 félagsmenn til að fara yfir liðið starfsár, kjósa í stjórn og trúnaðarráð og kjósa um breytingar á lögum og um önnur mál. Mikill einhugur var á fundinum og þrátt fyrir ólíkar skoðanir var öll umræðan málefnaleg. Ráðist var í víðtækar breytingar á lögum sem kynntar verðar nánar á næstunni. Við þökkum öllum þeim sem mættu og tóku þátt, hjartanlega fyrir komuna og fyrir sitt framlag á fundinum.
Stjórn Samtakanna '78 fyrir starfsárið 2017 – 2018 lítur svona út:
- María Helga Guðmundsdóttir, formaður
- Sigurður Júlíus Guðmundsson, varaformaður
- Álfur Birkir Bjarnason, ritari
- Benedikt Traustason, gjaldkeri
- Kitty Anderson, alþjóðafulltrúi
- Guðmunda Smári Veigarsdóttir, meðstjórnandi
- Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir, meðstjórnandi
Trúnaðarráð Samtakanna '78 fyrir starfsárið 2017 – 2018 lítur svona út:
- Alda Villiljós
- Andrés Peláez
- Guðjón Ragnar Jónasson
- Guðný Guðnadóttir
- Ingileif Friðriksdóttir
- Jóhann G. Thorarensen
- Marion Lerner
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Þór Eggertsson
- Sigríður J. Valdimarsdóttir
Þá eru skoðunarmenn reikninga:
- Heiður Björk Friðbjörnsdóttir
- Sigurjón Guðmundsson
Eftirfarandi félög eiga hagsmunaaðild að Samtökunum '78 starfsárið 2017-2018 og þar með rétt til að skipa tvo fulltrúa í hagsmunaráð.
- BDSM á Íslandi
- Félag hinsegin foreldra
- Hinsegin dagar
- Hinsegin kórinn
- HIN – Hinsegin Norðurland
- Intersex Ísland
- Íþróttafélagið Styrmir
- Q – Félag hinsegin stúdenta
- Trans-Ísland
Fundargerð aðalfundar verður birt á heimasíðunni innan skamms.