Fundur hjá ÁST

By 17. janúar, 2005Fréttir

Tilkynningar Næsti fundur hjá Áhugahópi samkynhneigðra um trúarlíf – ÁST verður sunnudaginn 23. janúar klukkan 17.00 í félagsheimili Samtakanna ´78, Laugavegi 3. Sérstakur gestur dagsins verður séra Pétur Þorsteinsson frá Óháða söfnuðinum og mun hann fjalla um fyrirgefninguna í spjalli sínu.

Trúarhópur Samtakanna ´78 er ekki bara fyrir þá er játa kristna trú heldur alla sem áhuga hafa á trúmálum, hverrar trúar sem þeir eru. Við hvetjum alla sem áhuga hafa að koma á fundi okkar og fræða okkur um sína trú og sína afstöðu til hennar og annarra trúarbragða.

-Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf – ÁST

2 Comments

Skrifaðu athugasemd