Næsti fundur í ungliðahópi Samtakanna ’78 verður sunnudaginn 15. apríl klukkan 20:00 í félagsheimili Samtakanna, Laugavegi 3.
Á fundinum á sunnudaginn mun Sigurlaug Haukssdóttir vera með fræðslukvöld um kynlíf undir yfirskriftinni: Njótum kynlífs! – fræðslufundur um kynlíf, kynheilbrigði og sjúkdóminn HIV/alnæmi.
Til þess að fá fréttir af því sem er að gerast er tilvalið að skrifa hópnum og láta skrá sig á netfangalistann. Netfang hópsins er unglidar@hotmail.com og það eru stjórnendurnir sem annast pósthólfið og svara bréfum, litið er á öll bréf sem trúnaðarmál. Ef þér finnst þægilegra að hitta þau áður en þú kemur á vettvang þá geturðu sent tölvupóst eða hringt á skrifstofu Samtakanna ’78 alla virka daga frá 13-17.
instagram takipçi satın al