Frá Eldhúsi fólksins

By 28. febrúar, 2012Fréttir

Róttækt femínískt eldhús + kvikmynd

Við viljum skapa vettvang fyrir róttæka feminista af öllum kynjum og kynhneigðum til að hittast, spjalla og elda saman. Eldaður verður gómsætur vegan matur úr hráefni sem annars yrði fargað.

Þetta matarboð er þolendavænt umhverfi; viðburður þar sem þolendur kynferðisofbeldis eiga ekki á hættu á að rekast á gerendur sína, eða geta að öðrum kosti reitt sig á að gerendur verði beðnir að fara ef þeir mæta.

Við viljum einnig skapa öruggara rými fyrir hverskyns valdaminni félagshópa sem verða fyrir aðkasti. Fordómafull orðræða sem inniheldur hómófóbíu, transfóbíu, sexisma, rasisma o.s.frv. er ekki liðin.

Eftir matinn verður sýnd kvikmyndin XXY (2007) sem fjallar um intersex manneskju.

FIMMTUDAGINN 1. MARS

Í GRASRÓTARMIÐSTÖÐINNI

BRAUTARHOLTI 4

ELDAKVENNSKAN HEFST KLUKKAN 17:00

BORÐHALD HEFST 19:30

Með kveðju, Eldhús fólksins

One Comment

  • Brucepog says:

    Decently, I’m obsessed with these CBD gummies like https://www.cornbreadhemp.com/collections/thc-drinks ! I’ve tried a nosegay of brands, but these are legit the best. I pop song after a lengthy prime and it just helps me chill in view and break off overthinking everything.
    They swallow like authentic candy no odd grassy flavor at all. My sleep has been feeling better since I started attractive them, too. If you’re on the rampart, just fetch them! They’re a unalloyed lifesaver for my routine stress.

Skrifaðu athugasemd