Um fræðsluna

Það er oft sagt að fordómar byggi á fáfræði. Þekking á hinsegin málum er grundvöllur í okkar mannréttindabaráttu og því er fræðsla er einn af hornsteinum Samtakanna ’78.

213

Fræðsluerindi árið 2019

6071

Manns fengu fræðslu á árinu 2019

212

Fyrirspurnir og aðstoð á árinu 2019

Fræðsla til starfsfólks og nemenda í grunnskóla

Samtökin ’78 eru með tvo þjónustusamninga við sveitarfélög, annan þeirra í Reykjavíkurborg og hinn í Hafnarfirði. Grunnskólar í þeim sveitarfélögum fá því fræðslu endurgjaldslaust. Fræðslan stendur öllum grunnskólum landsins til boða og hvetjum við skólastjórnendur til að bóka fræðslu fyrir starfsfólk sitt og nemendur.

Bóka fræðslu

Ferill fræðslunnar

1

Bókaðu fræðslu

Bókaðu fræðslu hér á vefnum, hringdu í okkur eða sendu okkur tölvupóst
2

Finnum tíma

Við finnum tíma í sameiningu, veljum fræðslupakka sem þú getur kynnt þér hér á síðunni, förum yfir fræðsluna og staðfestum svo
3

Við komum á staðinn

Fræðslustýra eða fræðari kemur á staðinn og fræðir
4

Endurgjöf á staðnum

Við dreifum endurgjafsblöðum og söfnum þeim saman.
5

Við verðum aftur í bandi

Eftir um tvær til þrjár vikur höfum við aftur samband og athugum hvernig fræðslan hafði áhrif á þau sem á hlýddu og ræðum málin
6

Loka endurgjöf

Eftir 2-3 mánuði eftir fræðsluna mun sá sem er skráð fyrir fræðslunni fá loka endurgjöf ásamt niðurstöðum úr endurgjöf á staðnum

Við ræðum hinseginleikann í allri sinni dýrð

Við erum öll að læra og mikilvægt er að spyrja spurninga og taka virkan þátt í fræðslunni til að læra sem mest og best. Við leggjum okkur fram við að vera skýr, koma fram af heilindum og af virðingu við þau sem fá fræðslu. Hinseginfræðin eru allskonar rétt eins og hinseginleikinn sjálfur.

Fræðslupakkar

Spurt & Svarað

Um hvað fjallar fræðslan?

Í fræðslu Samtakanna ’78 er fjallað um hinseginleika, hvað það þýðir að vera hinsegin og hvert er hægt að leita fyrir aðstoð og stuðnings. Í lok hverrar fræðslu er opnað fyrir nafnlausar spurningar og þeim svarað eftir bestu getu. Hægt er að hafa samband við skrifstofu Samtakanna ’78 fyrir upplýsingar um fræðsluna í síma 552-7878 eða skrifstofa samtokin78.is.

Hve margar fræðslur eru Samtökin ‘78 að halda á einu ári?

Árið 2019 voru haldin alls 213 erindi. Þar af voru flest í grunnskólum eða félagsmiðstöðvum í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að um það bil 6.000 einstaklingar hafi hlotið fræðslu frá Samtökunum ‘78 á árinu.

Ef ég panta fræðslu, hver kemur og fræðir?

Starfandi fræðslustýra Samtakanna ‘78 er Tótla I. Sæmundsdóttir en hún sinnir flestum fræðslum. Einnig er í sjálfsboðastarfi fyrir Samtökin hópur hinsegin fræðara sem eru á skólaaldri og sinna svokallaðri jafningjafræðslu.

Það veit enginn neitt um hinsegin málefni í skólanum mínum, hvað get ég gert?

Samtökin ‘78 bjóða upp á fræðslu fyrir grunn-og framhaldsskólanema, auk starfsfólks. Við hvetjum þig til að benda kennara eða öðru starfsfólki á að þú hafir áhuga á að bekkurinn þinn hljóti slíka fræðslu. Ef þú treystir þér ekki til þess geturðu sjálft haft samband við Samtökin 78 og við komum ábendingu þinni áleiðis til skólans.