Jafnrétti til sigurs án hinsegin fordóma

By 2. júní, 2016Uncategorized

25. maí síðastliðinn fór fram hádegisfundur um hinsegin fordóma en fyrirlesari var María Helga Guðmundsdóttir landsliðskona í karate og jafningjafræðari hjá Samtökunum 78. Hádegisfundurinn var samvinnuverkefni KSÍ, ÍSÍ og Samtakanna 78.

María Helga fjallaði um stöðu hinsegin fólks í íþróttum, um kynjakerfið og hvernig það hefur áhrif á íþróttamenningu og þýðingu ýmissa hugtaka eins og intersex og kynsegin.

Í fyrirlestrinum talaði María Helga um birtingaform fordóma á grundvelli kynhneigðar, kynvitundar og kyneinkenna í íþróttum.

Í lok fyrirlestursins ræddi hún um hvernig þjálfari, liðsfélagi, stjórnarmaður eða foreldri geti stutt hinsegin fólk í íþróttum og stuðlað þannig að opnu og fordómalausu umhverfi.

Jafnrétti til sigurs án hinsegin fordóma from ISI on Vimeo.

Skrifaðu athugasemd