Hópur fyrir foreldra og aðstandendur transfólks hittist

By 22. janúar, 2013Fréttir
Á morgun miðvikudag 23. janúar hittist hópur fyrir foreldra og aðstandendur transfólks kl. 20.00 í húsnæði Samtakanna ’78, Laugavegi 3, 4. hæð. 

Foreldrar barna í kynáttunarvanda eru sérstaklega velkomnir. 

Það er alltaf gott að hitta aðra sem eru í svipuðum aðstæðum og maður sjálfur og ræða málin opinskátt. Þarna gefst tækifæri á að spyrja spurninga og deila með öðrum upplifunum, jákvæðum og neikvæðum. Eins er þetta gott tækifæri til þess að afla sér upplýsinga um efni sem ekki alltaf er aðgengilegt.

Sigríður Birna Valsdóttir ráðgjafi hjá Samtökunum ´78 leiðir hópinn. Sigríður er leiklistar- og fjölskyldumeðferðarfræðingur að mennt og hefur starfað sem meðferðarfræðingur í 10 ár. 

 
Frekari upplýsingar í síma 694 8313

Skrifaðu athugasemd