Fræðsla frá Samtökunum ´78 hefur aldrei verið eftirsóttari. Því auglýsum við nú eftir fræðslufulltrúa til að halda utan um sívaxandi fræðslustarfsemi okkar. Um hlutastarf er að ræða fram til 1. desember nk. (40%) með möguleika á framlengingu og auknu starfshlutfalli síðar.
Verkefni:
- Hafa umsjón með fræðslu. Þróa hana í samræmi við nýjustu þekkingu og þarfir áheyrenda hverju sinni.
- Þjálfa jafningjafræðara og auglýsa eftir jafningjafræðurum eftir því sem þurfa þykir.
- Hafa umsjón með fræðsluhluta þeirra þjónustusamninga sem nú eru í gildi við samtökin.
- Auglýsa fræðslu og leita eftir nýjum samningum við stofnanir, sveitarfélög eða aðra aðila í samvinnu við framkvæmdastýru og stjórn.
- Næsti yfirmaður er framkvæmdastýra Samtakanna ´78.
Hæfniskröfur:
- Stúdentspróf.
- Háskólagráða sem nýtist í starfi er kostur, t.d. kynjafræði. Tilvalið fyrir háskólanema.
- Hæfileikar til að halda fyrirlestra og koma fram fyrir hóp af fólki.
- Góð þekking á hinsegin málefnum.
- Öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Vinnutími er óreglulegur og fer eftir nánara samkomulagi við framkvæmdastýru og stjórn
samtakanna.
Vinsamlegast sendið umsókn ásamt ferilskrá á skrifstofa@samtokin78.is fyrir 31. maí næstkomandi.
Thank you for your sharing. I am worried that I lack creative ideas. It is your article that makes me full of hope. Thank you. But, I have a question, can you help me?
Thank you for your sharing. I am worried that I lack creative ideas. It is your article that makes me full of hope. Thank you. But, I have a question, can you help me?